Þingforsetar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja heimsækja Moldóvu
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, sækir Moldóvu heim ásamt öðrum forsetum þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 29. maí til 1. júní. Á dagskrá heimsóknar eru m.a. fundir með Grosu Igor, forseta þjóðþings Moldóvu, Nataliu Gavrilița forsætisráðherra og formönnum þingflokka á Moldóvuþingi.
Einnig verða búðir úkraínskra flóttamanna heimsóttar og fundað með fulltrúum félagasamtaka en Moldóva hýsir hlutfallslega flesta flóttamenn frá stríðssvæðum. Forsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna hafa áður heimsótt Moldóvu sameiginlega, í maí 2014.
Hópmynd af forsetum þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja fyrir utan þinghús Moldóvu.
© Ljósmynd / Moldóvuþing